Körfubolti

Grindvíkingar yfir í hálfleik

Grindavík hefur yfir 59-54 gegn Skallagrími þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Leikurinn fer fram í Borgarnesi og hefur verið mjög fjörugur. Heimamenn náðu mest um 10 stiga forskoti í fyrri hálfleiknum, en gestirnir eru í miklu stuði. Páll Axel Vilbergsson er kominn með 16 stig hjá Grindavík og nafni hans Kristinsson 15 stig og hefur hitt úr öllum 7 skotum sínum.

Hjá Skallagrími er Pétur Sigurðsson stigahæstur með 11 stig, Dimitar Karazovski 9 stig, Darrell Flake 8 stig og Hafþór Gunnarsson 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×