Körfubolti

Úrslitin í körfunni hefjast í kvöld

Úrslitaeinvígið í Iceland Express-deild karla í körfubolta hefst í kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti KR-ingum í ljónagryfjunni í Reykjanesbæ. Um er að ræða viðureign tveggja efstu liðanna í deildarkeppninni og mun það lið sem fyrr sigra þrjá leiki standa uppi sem sigurvegari. Viðureign kvöldsins hefst kl. 20 og verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn.

Liðin mættust tvívegis í deildarkeppninni í vetur og unnu sitt hvorn leikinn. KR vann í fyrri leiknum sem fram fór í DHL-höllinni þann 19. nóvember á síðasta ári, 75-69, en Njarðvíkingar náðu fram hefndum á heimavelli sínum þann 23. febrúar sl. og unnu þá 83-73.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×