Fótbolti

Hitzfeld treystir á heimavöllinn

NordicPhotos/GettyImages
Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segir að liðið verði að setja í fluggírinn ef það ætli sér að slá AC Milan út úr 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Dramatískt jöfnunarmark varnarmannsins Daniel Van Buyten kom í veg fyrir að Bayern tapaði sjöunda leiknum af síðustu níu gegn ítalska liðinu í fyrri viðureigninni á dögunum.

"Við verðum að setja í fluggírinn í síðari leiknum og ég veit að liðið spilar alltaf 10-20% betur á heimavelli en á útivelli," sagði Hitzfeld og viðurkenndi að hann væri feginn að fá þá Oliver Kahn og Mark Van Bommel til baka úr leikbanni.

"Þeir eru vissulega mikilvægir hlekkir í liði okkar, en þetta veltur ekki á einstaklingum. Það verður betra liðið sem fer áfram í keppninni," sagði þjálfarinn. Mikil meiðsli eru í herbúðum liðsins og þeir Bastian Schweinsteiger og hetjan úr fyrri leiknum, Van Buyten, eru þannig báðir tæpir fyrir slaginn í kvöld. Eillie Sagnol og Martin Demichelis hafa einnig átt við meiðsli að stríða, en búist er við því að þeir Lucio og Owen Hargreaves spili í kvöld þrátt fyrir að vera nokkuð tæpir síðustu daga.

Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, segir að þó ítalska liðið líti vel út í sögulegu samhengi, skili það engu þegar á völlinn er komið. "Við þurfum á okkar besta leik að halda og ég held að við höfum reynslu og mannskap í að ná hagstæðum úrslitum."

Líkleg byrjunarlið í kvöld:

Bayern: Oliver Kahn; Hasan Salihamidžić, Lucio, Daniel Van Buyten, Philipp Lahm; Owen Hargreaves, Mark van Bommel, Andreas Ottl, Bastian Schweinsteiger; Roy Makaay, Lukas Podolski.



Milan:
Dida; Massimo Oddo, Paolo Maldini, Alessandro Nesta, Marek Jankulovski; Gennaro Gattuso, Andrea Pirlo, Massimo Ambrosini, Clarence Seedorf; Kaká; Filippo Inzaghi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×