Körfubolti

Seiglusigur KR á Njarðvík

KR jafnaði metin í úrslitaeinvíginu við Njarðvík í Iceland Express deildinni í kvöld með 82-76 baráttusigri í öðrum leik liðanna. Njarðvík var yfir allan leikinn, en Jeremiah Sola skoraði 7 af 9 stigum KR í mikilli rispu á lokamínútunum og tryggði heimamönnum sigur. Staðan í einvíginu er því jöfn 1-1 og næsti leikur er í Njarðvík á laugardaginn.

Pálmi Freyr Sigurgeirsson var stigahæstur hjá KR með 19 stig, þar af þrjá mikilvæga þrista í þriðja leikhlutanum. Tyson Patterson skoraði 16 stig og gaf 9 stoðsendingar og Fannar Ólafsson skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst. Jeremiah Sola skoraði 12 stig og komu þau nær öll undir lokin þegar KR tók öll völd á vellinum í fyrsta sinn í leiknum. Annars voru það líklega stuðningsmenn KR sem voru maður leiksins, en langt er síðan önnur eins stemming hefur sést á áhorfendapöllunum þar sem menn sungu fullum hálsi allan leikinn.

Jóhann Ólafsson var stigahæsti maður Njarðvíkur með 21 stig og þeir Brenton Birmingham og Jeb Ivey skoruðu 16 stig hvor. Friðrik Stefánsson skoraði 12 stig og hirti 14 fráköst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×