Þröstur Leó úr leik fram yfir áramót 14. nóvember 2008 12:31 Keflvíkingar hafa átt í nokkrum vandræðum með meiðsli það sem af er tímabils
Þröstur Leó Jóhannsson hjá Keflavík hefur gengist undir aðgerð vegna kviðslits og spilar ekki meira með liði sínu á árinu. Þröstur hefur ekki leikið með Keflvíkingum síðan í lok október en hefur nú gengist undir aðgerð. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, sagði í samtali við Vísi að hann þurfi minnst þrjár vikur til að jafna sig og verði því tæplega meira með liðinu á árinu. Iceland Express deild karla fer í jólafrí þann 19. desember og hefst aftur þann 8. janúar. Þröstur var í íslenska landsliðshópnum í sumar og hefur skorað 13 stig og hirt 6 fráköst að meðaltali í fjórum leikjum sínum með Keflavík í vetur. Reynsluboltinn Gunnar Einarsson var ekki með liði Keflavíkur í naumu tapi liðsins gegn Grindavík í gærkvöld, en hann á við bakmeiðsli að stríða. Sigurður Ingimundarson sagðist ekki geta sagt til um hve alvarleg meiðsli Gunnars væru, en útilokaði þó ekki að hann yrði með í næsta leik sem er gegn FSu á sunnudaginn. Gunnar hefur farið mikinn með liði Keflavíkur í vetur og er stigahæsti leikmaður liðsins með 18,4 stig og rúm 5 fráköst í leik. Auk þessa hafa Keflvíkingar á kafla leikið án Jóns N. Hafsteinssonar sem sneri sig á ökkla um daginn og hefur misst af þremur af sjö leikjum Keflvíkinga.
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Sagður utan hóps á kostnað Bjarka og Orra Handbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira