Enski boltinn

Inter með sex stiga forystu

Eiríkur stefán Ásgeirsson skrifar
Julio Ricardo Cruz fagnar marki sínu í kvöld.
Julio Ricardo Cruz fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Inter er komið með sex stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir sigur á Tórínó í kvöld, 1-0.

Julio Ricardo Cruz skoraði eina mark leiksins á 30. mínútu en alls fengu átta leikmenn að líta gula spjaldið í leiknum, þar af sex hjá Tórínó.

Roma er í öðru sæti deildarinnar með 72 stig en liðið gerði jafntefli við Livorno um helgina. Juventus er svo í þriðja sæti með 67 stig, átta stigum meira en Fiorentina sem er í fjórða sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×