Verið hrædd! Ólafur Sindri Ólafsson skrifar 22. maí 2008 06:00 Á sunnudaginn sat ungur lyfjafræðinemi og steytti hnefana framan í sjónvarpskerm. Það sauð á honum gremjan. Hvernig dirfðust þau? Hann var að horfa á grillveislu. Grillkjötið var átrúnaðargoð unga mannsins, sjálfur Luftstürmmeister Magnús Þór Hafsteinsson. Samfylkingarmoggasmástirnið Kristrún Heimisdóttir, Egill Helgason, Reynir Traustason og Amal Tamimi skiptust á að snúa grillteininum. Þetta voru einkar ósvífnar árásir. Því gat þetta fólk ekki séð að það er ódýrara að senda klippur og kjöt til útlanda en að flytja hlekkjað og hungrað fólk til Íslands? „Þau skulu fá þetta borgað!" hugsaði lyfjafræðineminn og í huga hans varð til skammarræða hvers affall rataði í bloggfærslu strax sama daginn. En það var ekki nóg. Hér dygði ekki minna en útvarpsávarp! Hann gerði sitt besta til að byrgja inni gremjuna uns honum tókst að skreiðast fram fyrir hljóðnema. Þetta yrði epískt. Hann skyldi tala blaðlaust! Þannig héldist innblásturinn. Ekkert of ígrundað. Útblástur sálarinnar skyldi sigla á öldum ljósvakans, hreinn og ómengaður eins og hinsta andvarp berklasjúkrar jómfrúar. „Góðan daginn, kæru Íslendingar!" Þjóðin lagði við hlustir. Um allt Breiðholtið hætti fólk við að spenna á sig spelkur, skrúfa toppana af lyfjaglösum og losa innsiglin af vindlingapökkum. „Ég á ekki orð!" Já, lyfsali framtíðarinnar átti ekki orð. Ekki eitt aukatekið orð yfir þessu og enn síður yfir hinu. Hann beinlínis átti svo fá orð að nær verður ekki komist því að þegja í útvarpserindi. Þó lumaði hann auðvitað á nokkrum vel völdum orðum. Minna mætti það nú vera. Hér var enda um að ræða vonarstjörnu allra fjósbitapúka landsins. Höfundur slagorðsins Þeir eru að berja Íslendinga! léti sig ekki reka algjörlega kjaftstopp á eyrnafjörur landans. Ekki á sama tíma og axarmorðingjar ráfuðu um miðborgina og ungir Skagasveinar færu í rúmið klukkan tíu á föstudagskvöldum af ótta við að rekast á starandi og blóðhlaupin maskarainnrömmuð girndaraugu einstæðra mæðra út um bréfalúguop á djammbúrkum. Nei, nú skyldi ekki þagað! Og þrátt fyrir að eiga ekki orð mæltist pillupotaranum vel: „Verið hrædd! Verið hrædd við kjöt af drepsjúkum rollum. Verið hrædd við axarmorðingja. Verið hrædd við vergjarnar konur. Verið hrædd við börnin þeirra. En umfram allt verið hrædd við eitthvað. Við Maggi skulum passa ykkur." Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Sindri Ólafsson Mest lesið Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun