Enski boltinn

Drogba til Inter í skiptum fyrir táning?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Didier Drogba, leikmaður Chelsea.
Didier Drogba, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Chelsea hafi boðið Inter Didier Drogba en aðeins ef þeir fá táninginn Mario Balotelli í staðinn.

Drogba hefur lengi lýst því yfir að hann vilji fara frá Chelsea og eru margir sem búast við því að það gerist í sumar.

Inter mun hafa gríðarlega mikinn áhuga á því að fá Drogba, sér í lagi ef Jose Mourinho tekur við Inter af Roberto Mancini.

Balotelli er talinn eitt mesta efni á Ítalíu en hann er sautján ára gamall. Hann skoraði nýverið í tveimur leikjum Inter í röð, gegn Atalanta og Fiorentina.

Honum stendur til boða að skrifa undir samning við Inter sem gildir til ársins 2013 en ef hann neitar að skrifa undir hann gæti verið að Inter væri tilbúið að sleppa honum í skiptum fyrir Drogba. Inter þyrfti þó að greiða góða summu í viðbót fyrir Drogba.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×