Körfubolti

Ótrúleg tölfræði Hlyns gegn Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson hefur verið frábær í síðustu tveimur leikjum hjá Snæfelli
Hlynur Bæringsson hefur verið frábær í síðustu tveimur leikjum hjá Snæfelli Mynd/Anton Brink
Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, var með ótrúlega tölfræði í öruggum 17 stiga sigri á Njarðvík í Ljónagryfjunni í undanúrslitaleik Lýsingarbikar karla í dag.

Hlynur þurfti nefnilega aðeins 4 skot utan af velli til þess að skora sín 19 stig sem þýddi að hvert skot hans var 4,8 stiga virði.

Þetta kom til vegna þess að hann skoraði 8 af 19 stigum sínum af vítalínunni og þrjú af fjórum skotum hans voru þriggja stiga skot. Hlynur hitti úr öllum fjórum skotum sínum, einu tveggja stiga sniðskoti og svo þremur þriggja stiga skotum en öll skotin hans komu í fyrri hálfleik.

Hlynur var einnig með 19 fráköst og sex stoðsendingar sem þýddi að hann var 1,5 stoðsendingu á hvert skot sem hann tók. Það voru helst 6 misheppnuð vítaskot og 4 tapaðir boltar sem drógu hann niður í framlagseinkunn sem var upp á 36.

Skotnýting Snæfells í leiknum var afbragðsgóð og fjórir aðalskorarar liðsins (Justin Shouse 28 stig, Hlynur 19, Sigurður Þorvaldsson 15 og Magni Hafsteinsson 13), nýttu saman 22 af 34 skotum sem gerir 64,7 prósent skotnýtingu utan af velli. Þeir þurftu því aðeins 34 skot til þess að skora 75 stig og hvert skot var því 2,2 stiga virði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×