Körfubolti

Webb: Verðum hættulegir í úrslitakeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ken Webb, þjálfari Skallagríms, og Hannes Jónsson formaður KKÍ.
Ken Webb, þjálfari Skallagríms, og Hannes Jónsson formaður KKÍ. Mynd/E. Stefán

Ken Webb var í dag útnefndur besti þjálfari Iceland Express-deildar karla fyrir umferðir 9-15. Hann segir að sínir menn í Skallagrími séu á uppleið.

„Þetta hefur gengið bara þokkalega vel hjá okkur," sagði Webb í samtali við Vísi í dag. „Nokkrir leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða en strákarnir hafa lagt hart sér og undanfarinn mánuður hefur verið góður - þar til kannski nú um helgina," sagði hann og hló.

Skallagrímur tapaði um helgina fyrir Fjölni í undanúrslitum bikarkeppninnar og það á heimavelli.

„Ég sagði strákunum að þeir þurftu að halda væntingum sínum í algjöru lágmarki. Maður horfir kannski á stöðutöfluna í deildinni og dregur þá ályktun að þetta ætti að vera auðveldur sigur fyrir okkur. En það þarf samt alltaf að spila þessa leiki til enda og við náðum okkur engan veginn á strik síðustu sjö mínúturnar."

Hann segir þó að útlitið sé bjart hjá Skallagrími og hann stefnir á að tryggja liðinu sem besta sætinu í deildinni fyrir úrslitakeppnina.

„Það eru erfiðir leikir framundan, þar af fjórir á útivelli, og ætlum við að klára deildina eins vel og við mögulega getum. Svo verðum við bara að sjá til þegar í úrslitakeppnina er komið."

Þeir Axel Kárason og Milijica Zekovic hafa átt við meiðsli að stríða undanfarnar vikur en sá síðarnefndi hefur hægt og rólega verið að ná sínu fyrra formi. Webb býst við að það sé stutt í Axel og þá hefur liðið fengið til sín nýjan leikmann.

Sá heitir Florian Miftari og er frá Kosovo-héraðinu í Serbíu. Hann hefur ekkert spilað með Skallagrími til þessa en gæti vel spilað sinn fyrsta leik gegn Fjölni á fimmtudaginn kemur.

„Mín lið hafa alltaf verið betri eftir áramót og hefur það verið tilfellið hjá okkur. Það tekur auðvitað alltaf tíma að koma til skila nýjum áherslum og nýrri hugmyndafræði en mínir menn eru allir að koma til."

„Ég er þjálfari af gamla skólanum og tel að titlar vinnist á varnarleik og fráköstum. Ég hef reynt að einbeita mér að þessu á æfingum sem er nýtt af nálinni fyrir suma strákana. En þetta er allt að koma og við verðum að halda áfram að bæta okkur. Ef við verðum lausir við meiðsli getum við verið með hættulegt lið í úrslitakeppninni."

Hópurinn samankominn. Lengst til hægri er Hannes Jónsson formaður KKÍ og lengst til vinstri Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express.E. Stefán
Adam Darboe, Grindavík.E. Stefán
Brenton Birmingham, Njarðvík.E. Stefán
Hreggviður Magnússon, ÍR.E. Stefán
Hlynur Bæringsson, Snæfelli.E. Stefán
Darrell Flake, Skallagrími.E. Stefán
Kristinn Óskarsson, besti dómarinn.E. Stefán
Ken Webb, Skallagrími, besti þjálfarinn.E. Stefán
Hlynur Bæringsson með viðurkenningu sína sem hann hlaut fyrir að vera útnefndur besti leikmaðurinn.E. Stefán

Tengdar fréttir

Hlynur valinn bestur

Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells, var í dag valinn besti leikmaður Iceland Express deildar karla fyrir umferðir 9-15.

Hlynur: Stefnum á efstu fjögur sætin

„Mér finnst alltaf gaman af slíkum viðurkenningum og þeir sem halda öðru fram eru einfaldlega að ljúga,“ sagði Hlynur Bæringsson, besti leikmaður Iceland Express-deildar karla í umferðum 9-15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×