Ég tek þetta á mig 3. apríl 2008 21:13 Benedikt Guðmundsson var mjög ósáttur við sína menn í kvöld
Benedikt Guðmundsson þjálfari KR var afar óhress með frammistöðu sinna manna í kvöld þegar þeir létu ÍR-inga flengja sig á heimavelli og féllu úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í körfubolta. "ÍR-ingarnir stóðu við stóru orðin, mættu öflugir til leiks og áttu sinn besta leik. Mér fannst við bara aldrei vera inni í þessum leik og þeir settu strax á svið flugeldasýningu í fyrsta leikhluta," sagði Benedikt. Íslandsmeistararnir eru því fallnir úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og Benedikt vill taka ábyrgð á þeirri staðreynd. "Mér hefur ekki tekist að fá það besta út úr mönnum eins og Brynjari, Helga og Sola, svo ég tek þetta bara alfarið á mig. Mér fannst við bara vera flatir. Annað hvort vorum við svona góðir með okkur eða svona spenntir. Mér bara mistókst algjörlega að stappa stálinu í liðið fyrir þennan leik. Það að falla úr leik í fyrstu umferð er auðvitað alveg óásættanlegt," sagði Benedikt í samtali við Stöð 2 Sport. Hreggviður Magnússon, leikmaður ÍR, gaf út stórar yfirlýsingar eftir fyrsta leikinn og hann var að vonum borubrattur þegar Arnar Björnsson náði tali af honum eftir leikinn í kvöld. "Við vissum það þegar þessi sería byrjaði að við værum með betra lið en KR og við stóðum við stóru orðin - en það gerði Fannar Ólafsson (leikmaður KR) ekki. Við vissum að við myndum vinna í kvöld, Fannar talaði um rassskellingu, en þetta er rassskelling," sagði Hreggviður brattur.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira