Horfðu á alla leiki HM í glerkassa Tveir menn geta sagt að þeir hafi átt vægast sagt skemmtilegt sumar þar sem þeir fengu borgað af Fox í Bandaríkjunum fyrir að horfa á alla leiki HM í glerkassa á Times Square. Um sex þúsund manns sóttu um að horfa á leikinn í kassanum. Fótbolti 20.7.2026 19:46
„Sársaukinn er gríðarlegur“ Lionel Messi er virkilega sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann reynir þó að horfa á mótið með bjartsýnisaugum og hugsar um allar góðu stundir mótsins. Fótbolti 20.7.2026 19:00
Hefur þjálfað hetjuna sína í fjórum landsliðum Það var Barcelona-leikmaður sem tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn, bara kannski ekki sá Börsungur sem flestir bjuggust við. Ferran Torres kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum og skoraði sigurmark Spánverja í framlengingunni. Fótbolti 20.7.2026 17:15
Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Rodri leiddi Spánverja til heimsmeistaratitilsins í gær og var í framhaldinu kosinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins. Það tók hann langan tíma að ná sér af erfiðum hnémeiðslum en hann sýndi á þessu heimsmeistaramóti af hverju hann er besti miðjumaður heims. Fótbolti 20. júlí 2026 10:01
Spænsk landslið hafa unnið sextán titla á síðustu fimm árum Spánverjar urðu í gærkvöldi heimsmeistarar í fótbolta og eru því handhafar allra þriggja stóru titla karlafótboltans. Þá er samt sigurganga spænsku landsliðanna langt frá því að vera upptalin. Fótbolti 20. júlí 2026 08:46
Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Táningspiltur er látinn og nokkrir eru sagðir slasaðir eftir að gosbrunnur hrundi í fagnaðarlátum eftir að Spánn vann heimsmeistaratitilinn í fótbolta í gærkvöldi. Fótbolti 20. júlí 2026 08:15
Rooney um hálfleikssýninguna: „Þetta var drasl“ Tónlistaratriðin í hálfleik í úrslitaleik heimsmeistaramótsins mæltust misvel fyrir. Fyrrverandi fyrirliða Manchester United og enska landsliðsins þótti allavega lítið til þeirra koma. Fótbolti 20. júlí 2026 07:30
Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Tilfinningarnar báru Lionel Messi, fyrirliða Argentínu, ofurliði eftir úrslitaleik HM í kvöld. Argentínumenn lutu þar í lægra haldi fyrir Spánverjum, 1-0, en þetta var að öllum líkindum síðasti leikur Messis á heimsmeistaramóti. Fótbolti 19. júlí 2026 23:43
Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Ferran Torres reyndist hetja Spánar gegn Argentínu í úrslitaleik HM 2026. Hann skoraði eina markið í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Torres segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sá boltann í netinu. Fótbolti 19. júlí 2026 22:45
Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Argentínumaðurinn Leandro Paredes var rekinn af velli eftir úrslitaleik HM gegn Spánverjum fyrir slagsmál. Fótbolti 19. júlí 2026 22:29
Spánverjar heimsmeistarar Spánn varð í kvöld heimsmeistari í fótbolta karla í annað sinn eftir 1-0 sigur á Argentínu í framlengdum úrslitaleik á MetLife-leikvanginum í New Jersey. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Fótbolti 19. júlí 2026 22:05
Bað Trump um hjálp og nær að mæta á úrslitaleikinn Joan Capdevila, heimsmeistari með liði Spánar árið 2010, bað Donald Trump um hjálp við að fá ferðaleyfi til Bandaríkjanna fyrir úrslitaleik HM milli Spánar og Argentínu. Leyst hefur verið úr málunum og Capdevila verður viðstaddur leikinn í kvöld. Fótbolti 19. júlí 2026 17:15
Vonar að Modric haldi áfram Slaven Bilic, nýráðinn landsliðsþjálfari Króatíu, vonar að Luka Modric haldi áfram að spila fyrir landsliðið. Fótbolti 19. júlí 2026 12:01
Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Gianni Infantino forseti FIFA komst ekki á bronsleik HM í Miami og Spánn þurfti að hætta við síðustu æfinguna fyrir úrslitaleikinn vegna ofsaveðursins sem gekk yfir New York borg í gær. Argentína slapp með skrekkinn. Fótbolti 19. júlí 2026 11:17
Maður dagsins á HM: Stjörnustrákurinn vildi spila meira Bukayo Saka skoraði þrennu í 6-4 sigri Englands gegn Frakklandi í bronsleik HM í gærkvöld en „hefði elskað“ að spila meira á mótinu og segist hafa verið í formi til þess. Fótbolti 19. júlí 2026 10:34
Messi þarf að minnsta kosti tvennu til að taka fram úr Mbappé Eftir markaregn í bronsleiknum er Kylian Mbappé orðinn markahæsti leikmaður á HM 2026 og í keppninni frá upphafi. Lionel Messi þarf að minnsta kosti tvö mörk til að taka fram úr honum. Fótbolti 19. júlí 2026 10:02
„Snerist um að færa þjóðinni besta árangurinn á HM í sextíu ár“ Bukayo Saka varð fjórði enski leikmaðurinn til að skora þrennu á HM þegar hann skoraði þrjú af sex mörkum Englands í 4-6 sigri á Frakklandi í ótrúlegum bronsleik í Miami í gær. Fótbolti 19. júlí 2026 09:00
Búið spil fyrir Messi og félaga? Drake veðjaði á argentínskan sigur Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake hefur lagt háa fjárhæð undir að Argentína vinni úrslitaleik HM í kvöld. Það hefur venjulega ekki boðað gott fyrir íþróttamenn og -lið ef Drake veðjar á þau. Fótbolti 19. júlí 2026 08:01
Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Bukayo Saka skoraði þrennu þegar England sigraði Frakkland, 4-6, í leiknum um 3. sætið á HM í fótbolta í Miami í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Englendingar vinna til bronsverðlauna á HM og um er að ræða besta árangur enska liðsins síðan það varð heimsmeistari 1966. Fótbolti 18. júlí 2026 23:05
Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Yfirmaður leikmannamála hjá danska félaginu Brøndby hefur verið í viðræðum við umboðsmenn norska markmannsins Orjan Nyland en býst við því að verðmiði hans hafi hækkað töluvert eftir HM. Fótbolti 18. júlí 2026 20:01
Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Emiliano Martínez markvörður Argentínu hefur harkað af sér meiðsli allt heimsmeistaramótið, eftir að hafa puttabrotnað í úrslitaleik Evrópudeildarinnar með Aston Villa. Fótbolti 18. júlí 2026 11:37
„Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Lionel Messi segir það „sturlað“ að mæta Lamine Yamal í úrslitaleik HM eftir að hafa verið myndaður með hann í baði sem ungabarn. Fótbolti 18. júlí 2026 10:23
Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Tomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands axlar ábyrgð á 2-1 tapi liðsins gegn Argentínu í undanúrslitaleik HM en segist ekki sjá eftir ákvörðunum sínum. Fótbolti 18. júlí 2026 09:36
Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Argentínska ofurstjarnan Lionel Messi svaraði gagnrýnendum sem hafa hraunað yfir ríkjandi heimsmeistara vegna meintrar hlutdrægni dómara og hygli frá yfirstjórn fótboltans. Fótbolti 18. júlí 2026 08:02