Bað Trump um hjálp og nær að mæta á úrslitaleikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 17:15 Joan Capdevila lenti í Bandaríkjunum í morgun samkvæmt New York Post. Alex Livesey - FIFA/FIFA via Getty Images Joan Capdevila, heimsmeistari með liði Spánar árið 2010, bað Donald Trump um hjálp við að fá ferðaleyfi til Bandaríkjanna fyrir úrslitaleik HM milli Spánar og Argentínu. Leyst hefur verið úr málunum og Capdevila verður viðstaddur leikinn í kvöld.
Capdevila birti færslu á samfélagsmiðilinn X í fyrradag þar sem hann skrifaði „ÉG ÞARF HJÁLP“ og beindi skilaboðum sínum til Trump. Hann hafði áður greint frá því að hann gæti átt erfitt með að komast inn í Bandaríkin, eftir að hafa tekið þátt í „La Liga Legends“ vináttuleik sem fór fram í Íran árið 2016. Þá sagðist Capdevila hafa reynt að fá spænska knattspyrnusambandið til að hjálpa sér, í gegnum FIFA, án árangurs. 🚨 ¡NECESITO AYUDA @realDonaldTrump ! 🙏Me acaban de decir que no puedo viajar a la final con mis hijos porque me han denegado el ESTA 😭¿Alguien me puede ayudar con esto? No sabéis la ilusión que me hacía poder estar allí con todos mis compañeros de 2010 y con este equipo… pic.twitter.com/VH9wakzaH1— Joan Capdevila (@capde11) July 17, 2026 Vendingar urðu svo í málinu í morgun þegar Marcos Senna, Evrópumeistari með Spáni árið 2008 og fyrrum liðsfélagi Capdevila, birti mynd af honum á Instagram. Þar voru þeir félagar staddir í flugvél og undirskriftin gaf til kynna að þeir væru lentir í Bandaríkjunum. New York Post greinir frá því að Capdevila sé lentur í New York og verði viðstaddur úrslitaleikinn í New Jersey í kvöld.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Fleiri fréttir Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Sjá meira