Íslenski boltinn

Bjarni Jó hættur

Aron Guðmundsson skrifar
Bjarni Jóhannsson telur ungt lið Breiðabliks þurfa nauðsynlega á reynslumeiri leikmönnum að halda.
Bjarni Jóhannsson telur ungt lið Breiðabliks þurfa nauðsynlega á reynslumeiri leikmönnum að halda.

Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. 

Frá þessu greinir Bjarni í samtali við Fótbolta.net en hann tók sér frí frá þjálfun í ár eftir að hafa stýrt liði Selfoss. 

Bjarni segir aldurinn hafa sitt að segja í þessu en ekki síður skort á ástríðu og hungri gagnvart því að halda þjálfaraferlinum áfram. 

„Mér stóð til boða að þjálfa lengur en hugur og hjarta sögðu að ástríðan væri ekki fyrir hendi. Ég hef melt þetta í rólegheitum síðan og þetta er endanlega niðurstaðan hjá mér núna,“ segir Bjarni í samtali við Fótbolta.net. 

Víðir Sigurðsson tók saman tölfræði frá þjálfarferli Bjarna í frétt Fótbolta.net og stýrði Bjarni liðum sem aðalþjálfari á Íslandsmóti í samtals 666 leikjum. Hann er sá eini sem hefur stýrt liði í meira en 600 leikjum á Íslandsmóti og eru þá allir leikir á hans ferli ekki upptaldir. 

Í tvígang gerði hann liði ÍBV að Íslandsmeisturum (1997 og 1998) og að auk þess urðu liði ÍBV og Fylkis bikarmeistarar undir hans stjórn árin 1998 og 2000. 

Ferill Bjarna spannar 37 tímabil. Hann féll í fyrsta og eina skipti með Selfyssingum undir lok ferilsins en gerði það enn fremur að listgrein á sínum ferli að koma liðum upp um deild. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×