„Ég tek fulla ábyrgð“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var afar ósáttur eftir 5-0 tap liðsins gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Árbænum í dag. Íslenski boltinn 14.5.2026 17:35
„FH er bara á sinni vegferð“ Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 5-0 sigur á FH í Mjólkurbikar karla í Árbænum í dag. Íslenski boltinn 14.5.2026 17:29
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Fylkir fagnaði 5-0 sigri gegn FH í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Með öðrum orðum tók Heimir Guðjónsson sína gömlu lærisveina í bakaríið. Máni Austmann Hilmarsson skoraði þrennu, Dagur Traustason og Hlynur Sævar Jónsson komust einnig á blað. Íslenski boltinn 14.5.2026 14:18
Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Leikur Fylkis og KFA í Mjólkurbikar karla í fótbolta hefur verið blásinn af vegna ofankomu. Liðin höfðu barist við veðurguðina í rúmar tuttugu mínútur þegar leikurinn var stöðvaður og menn sendir til búningsherbergja. Íslenski boltinn 2. apríl 2026 14:50
Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkismenn urðu í dag Lengjubikarmeistarar karla í fótbolta eftir ævintýralegan úrslitaleik gegn KR. Vítaspyrnukeppni þurfti til, eftir að staðan var 4-4 að loknum venjulegum leiktíma. Íslenski boltinn 21. mars 2026 20:03
„Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Heimir Guðjónsson tók við stjórnartaumunum hjá karlaliði Fylkis í fótbolta síðasta haust og er strax búinn að færa félaginu fyrsta titilinn. Fylkir vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti í sögu félagsins í dag og þessi titill er langþráður. Fótbolti 21. mars 2026 17:13
Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Fylkir vann Lengjubikar karla í fótbolta í fyrsta skipti í sögu Fylkis þegar liðið bar sigurorð af KR eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleik mótins sem fram fór á Tekk-vellinum í Lautinni í Árbænum í blíðskaparveðri í dag. Íslenski boltinn 21. mars 2026 16:12
„Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson vonast til að hans menn í liði KR byggi ofan á afgerandi 4-0 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikars karla síðustu helgi er liðið mætir Fylki í úrslitum í dag. Íslenski boltinn 21. mars 2026 11:50
Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, er nokkuð bjartsýnn fyrir úrslitaleik dagsins við KR í Lengjubikar karla í fótbolta. Hann segir hungur í bikar í Árbæ en gerir sér grein fyrir því að verkefnið er ekki einfalt. Íslenski boltinn 21. mars 2026 11:00
Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn B-deildarlið Fylkis tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Lengjubikarsins í fótbolta eftir tveggja marka sigur á Bestu deildarliði Þórs á Akureyri. Íslenski boltinn 17. mars 2026 19:54
Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Fylkismenn eru nánast búnir að tryggja sér sæti í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta, eftir 4-2 sigur gegn ÍBV í Árbænum í kvöld. Íslenski boltinn 11. mars 2026 19:19
Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Þróttur jafnaði Fylki að stigum á toppi 4. riðils A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld, með 3-0 sigri í leik liðanna í Laugardalnum. Íslenski boltinn 5. mars 2026 21:20
Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Aðeins fyrri hálfleikur fór fram í leik Fylkis og FH í Lengjubikar karla í fótbolta í Árbænum í kvöld. Íslenski boltinn 27. febrúar 2026 21:03
Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Fjórir leikir voru á dagskrá A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Fylkir hafði betur gegn ungu liði Breiðabliks og FH valtaði yfir Þrótt Reykjavík. Íslenski boltinn 6. febrúar 2026 21:35
Róbert með þrennu í sigri KR KR vann 5-2 sigur á Fylki í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Íslenski boltinn 10. janúar 2026 15:30
Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Víkingar fara í úrslit á Bose-mótinu annað árið í röð eftir góðan 4-1 sigur á Fylki í kvöld. Íslenski boltinn 17. desember 2025 19:05
„Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Einn dáðasti sonur Fylkis og annar af fyrirliðum liðsins síðustu ár, Ásgeir Eyþórsson, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna. Íslenski boltinn 15. desember 2025 22:23
Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik ÍA og Stjarnan fögnuðu sigri í leikjum dagsins í Bose-bikarnum í fótbolta. Íslenski boltinn 13. desember 2025 18:03
„Sagan hefur sýnt það að ég er góður að þjálfa unga og efnilega leikmenn“ Heimur Guðjónsson skrifaði undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis seinnipartinn í gær. Hann tekur við liðinu af Arnari Grétarssyni. Sport 28. október 2025 10:02
Heimir kynntur til leiks í Árbænum Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari Fylkis sem leikur í Lengjudeild karla í fótbolta á næstu leiktíð. Hann skrifar undir tveggja ára samning í Árbænum. Íslenski boltinn 27. október 2025 17:50
Heimir sagður taka við Fylki Heimir Guðjónsson sér ekki fram á langa atvinnuleit eftir að hann lýkur störfum hjá FH í lok tímabilsins í Bestu deild karla. Hann taki við Fylki í Lengjudeild. Íslenski boltinn 14. október 2025 14:46
Úrslitaspurningin var um letigarð Í síðasta þætti af Kviss mætti Fylkir FH í sextán liða úrslitum. Mikael Kaaber og Sunneva Einarsdóttir mættu fyrir hönd Fylkis og kepptu á móti Berglindi Öldu og Friðriki Dór sem vörðu heiður FH. Lífið 1. október 2025 16:01
Arnar ekki áfram með Fylki Ekki verður framhald á samstarfi Arnars Grétarssonar og Fylkis. Hann stýrði liðinu seinni hluta tímabilsins. Íslenski boltinn 26. september 2025 13:33
„Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Eftir meiðslahrjáðan feril hefur Emil Ásmundsson sett fótboltaskóna upp á hillu aðeins þrítugur að aldri. Fimmta hnéaðgerðin á rúmum áratug gerði útslagið. Íslenski boltinn 18. september 2025 08:00