Fótbolti

Bayern gefur út yfir­lýsingu vegna veikinda Kompany

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vincent Kompany hefur verið aðalþjálfari Bayern München frá 2024 en þar áður stýrði hann Burnley á Englandi og Anderlecht í Belgíu.
Vincent Kompany hefur verið aðalþjálfari Bayern München frá 2024 en þar áður stýrði hann Burnley á Englandi og Anderlecht í Belgíu. EPA/ANNA SZILAGYI

Eins og fram kom fyrr í dag á Vísi þá var Vincent Kompany, aðalþjálfari Bayern München, fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hnigið niður á æfingasvæðinu.

Þýska félagið hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna veikinda Kompany.

„Vincent Kompany þurfti á föstudag að fá læknisaðstoð eftir að hafa hnigið niður á æfingu hjá áhugamannaliði FC Bayern,“ segir í yfirlýsingu frá Bundesliga-félaginu.

Hann mun hafa verið að fylgjast með æfingu varaliðsins þegar atvikið átti sér stað.

Félagið skrifar enn fremur að Kompany muni gangast undir ítarlegar rannsóknir á sjúkrahúsinu og vera undir eftirliti lækna.

„Heilsa Vincents Kompany er okkar helsta forgangsatriði. Við hjá FC Bayern munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að hann fái skjóta umönnun og vonum að hann nái sér fljótt,“ segir enn fremur í fréttatilkynningunni.

Þangað til mun þjálfarateymi hans stýra æfingum og leikjum. Næsti leikur FC Bayern er gegn Freiburg á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×