Körfubolti

„Per­sónu­leg mál sem ég þurfti að eiga við“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
DeAndre Kane skilaði sínu í kvöld.
DeAndre Kane skilaði sínu í kvöld. Vísir/Guðmundur

DeAndre Kane átti stórfínan leik fyrir Grindvíkinga er liðið vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Bónus-deild karla í kvöld.

„Þetta var góð tilfinning. Gott að komast aftur á gólfið í Grindavík,“ sagði Kane í viðtali í leikslok.

„Það var hræðilegt hvernig við töpuðum gegn Breiðablik um daginn. Ég verð að hrósa þeim því þeir mættu og spiluðu af mikilli orku sem við gátum ekki haldið í við. Það var niðurlægjandi tap og þjálfarinn lét okkur heyra það fyrir þá frammistöðu. Þannig okkur langaði virkilega að mæta og sýna hvað í okkur býr í kvöld. Fyrir okkur og fyrir okkar stuðningsfólk. Við vildum bara spila vel í kvöld.“

Persónuleg mál sem hann ræðir ekki strax

Sjálfur var Kane mikið milli tannanna á fólki í aðdraganda tímabilsins sökum þess að Grindvíkingar náðu ekki í hann og á tímabili var tvísýnt að hann myndi yfir höfuð mæta til landsins.

Kane mætti þó loks til landsins síðustu helgi, en hann hafði ekki áhuga á því að tjá sig of mikið um þessi mál.

„Þetta voru bara persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við. Fólk getur sagt það sem það vill og haft sínar skoðanir, en ég er mættur núna.“

Þá segir hann það hins vegar góða tilfinningu að vera mættur og að hafa getað hjálpað liðinu að sækja sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

„Klárlega. Þetta eru mínir strákar. Strákar sem ég er búinn að vera með í fjögur ár og mig langar ekki að spila fyrir neitt annað lið. Að koma aftur hingað og byrja aftur að vinna var allt sem mig langaði að gera. Það tók smá tíma, en eins og ég sagði þá er ég mættur núna og við ætlum að koma okkur á rétta braut. Reyna að koma okkur aftur á sigurbraut.“

Að lokum fór Kane stuttlega yfir það sem varð til þess að Grindvíkingar sóttu sigurinn í kvöld.

„Stjarnan er með gott lið og við vitum það. Við vitum að þeir eru með mikið af góðum leikmönnum og þeir gefast ekkert upp fyrr en lokaflautið gellur. Þeir eru með frábæra leikmenn, en auðvitað með nýjan þjálfara þannig þeir eru kannski enn aðeins að finna út úr sínu, en ég held að þeir eigi eftir að verða góðir,“ sagði Kane.

„Við spiluðum það sem við vildum spila vel. Við vorum ákveðnir og hraðir í okkar leik. Við spiluðum saman og höfðum svolítið gaman og ég held að það hafi hjálpað okkur að sækja þennan sigur,“ sagði Kane að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×