Íslenski boltinn

Matthías hættur hjá Val

Sindri Sverrisson skrifar
Matthías Guðmundsson er hættur sem þjálfari Valskvenna.
Matthías Guðmundsson er hættur sem þjálfari Valskvenna. Vísir/Anton Brink

Matthías Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta, eftir að liðið féll úr efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þetta tilkynnti félagið í dag.

Þrátt fyrir að hafa endað með 24 stig féllu Valskonur úr Bestu deildinni í ár, eftir að hafa aldrei áður í sögunni setið í fallsæti.

Eftir sigur á Fram í lokaumferðinni 2. október, sem þó dugði ekki til að halda Val uppi, lýsti Matthías yfir áhuga á að halda áfram að þjálfa liðið í Lengjudeildinni.

„Ég er með samning í eitt ár í viðbót og hef áhuga á að vera áfram hjá Val, klárlega,“ sagði Matthías við Vísi.

Í tilkynningu Vals í dag segir engu að síður að um sameiginlega niðurstöðu beggja aðila sé að ræða um að Matthías láti nú af störfum.

„Tímabilið olli okkur öllum vonbrigðum og niðurstaðan varð sú að liðið féll úr Bestu deildinni. Úrslitin féllu ekki alltaf með okkur í sumar en Matti lagði sig allan fram fyrir liðið og félagið.

Matti er góður og gegn Valsmaður og einn af okkar allra bestu sonum. Knattspyrnudeild Vals þakkar honum innilega fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta,“ sagði einnig í tilkynningunni.

Matthías tók fyrst við Valsliðinu fyrir tveimur árum, fyrst með Kristjáni Guðmundssyni sem hætti svo í byrjun ágúst í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×