Íslenski boltinn

Hólmar Örn hættur: „Þakk­látur fyrir allt ferða­lagið“

Sindri Sverrisson skrifar
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur lagt skóna á hilluna.
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur lagt skóna á hilluna. vísir/Anton

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, hefur ákveðið að leggja takkaskóna á hilluna eftir þessa leiktíð. Valur mætir Stjörnunni í Garðabæ á laugardaginn í lokaumferð Bestu deildarinnar.

„Eftir mikla umhugsun hef ég ákveðið að leggja skóna á hilluna þegar þessu tímabili lýkur,“ skrifar Hólmar á ensku á Instagram, í lauslegri þýðingu blaðamanns.

Þessi 36 ára miðvörður frá Sauðárkróki lék með Tindastóli og HK í yngri flokkum en hóf svo atvinnumannaferilinn á því að fara til West Ham árið 2008. Hann var svo atvinnumaður í Englandi, Belgíu, Þýskalandi, Noregi, Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri heim til Íslands fyrir tímabilið 2022.

Hólmar lék líka lykilhlutverk í vörn íslenska U21-landsliðsins sem komst í fyrsta sinn á stórmót þegar það fór á EM árið 2011 og setti met yfir flesta leiki fyrir liðið. Þá lék hann 19 leiki fyrir A-landsliðið og skoraði í þeim tvö mörk.

„Allt frá því að ég var ungur drengur var draumur minn að verða atvinnumaður í fótbolta og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess. Frá HK til West Ham United, Cheltenham Town, KSV Roeselare, VfL Bochum, Rosenborg, Maccabi Haifa, Levski Sofia og Vals. Það hafa verið forréttindi að fá að vera fulltrúi þjóðar minnar með landsliðinu, spila fyrir frábær félög, búa í ólíkum löndum og kynnast nýrri menningu. Þetta eru upplifanir og minningar sem munu fylgja mér alla ævi.

Kærar þakkir til alls þess frábæra fólks sem ég hef kynnst á leiðinni — liðsfélaga, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna.

Sérstakar þakkir til eiginkonu minnar og fjölskyldu fyrir að standa við bakið á mér í gegnum súrt og sætt.

Þetta hefur verið mikið ferðalag og ég er þakklátur fyrir hvern einasta hluta þess,“ skrifar Hólmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×