Íslenski boltinn

Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánu­daginn

Sindri Sverrisson skrifar
Blikakonur eru orðnar vanar því að fagna titlum og eru mögulega bara einum sigri frá því að verja Íslandsmeistaratitilinn sinn.
Blikakonur eru orðnar vanar því að fagna titlum og eru mögulega bara einum sigri frá því að verja Íslandsmeistaratitilinn sinn.

Breytingar hafa orðið á leikjadagskránni í Bestu deild kvenna sem gera að verkum að Breiðablik gæti mögulega orðið Íslandsmeistari á mánudaginn með sigri á Stjörnunni í leik sem hefst klukkan 17.

Fótboltaáhugafólk vonast eflaust flest til þess að úrslitin í Bestu deildinni ráðist með hreinum úrslitaleik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli næsta föstudagskvöld, í lokaumferðinni.

Til þess að svo verði má FH ekki fá færri stig en Breiðablik í næstsíðustu umferðinni því þrjú stig skilja liðin að. Markatala þeirra er nánast jöfn en Breiðablik er þar einu marki á undan.

Vegna slæmrar veðurspár um helgina voru leikir toppliðanna færðir til og mun FH taka á móti Þrótti snemma á sunnudaginn eða klukkan 11. Ef FH tekst ekki að vinna þann leik munu Blikakonur vita að þær geta orðið Íslandsmeistarar í Garðabænum á mánudaginn.

Breiðablik hefur orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð og alls tuttugu sinnum en FH, sem varð í 2. sæti í fyrra, hefur beðið eftir Íslandsmeistaratitli frá árinu 1976 þegar liðið vann sinn fjórða af fyrstu fimm Íslandsmeistaratitlunum í fótbolta kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×