Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2026 14:00 Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er spenntur fyrir kvöldinu líkt og flestallir Mosfellingar. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Magnús Már Einarsson býst við að Mosfellingar fjölmenni í Árbæinn er lærisveinar hans í Aftureldingu mæta Fylki í Lengjudeildarslag í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
Töluvert er síðan að Breiðablik tryggði sæti sitt í bikarúrslitunum með sigri á Víkingi í Kópavogi og beðið hefur verið eftir því að fá að vita hver andstæðingurinn verður. Sama hvað er ljóst að Lengjudeildarlið verður í úrslitunum því efstu tvö lið B-deildarinnar eigast við í Árbænum í kvöld. „Bikarinn er búinn að vera bara einn leikur í mánuði frá því við byrjuðum á móti ÍR í Egilshöll í mars. Við höfum gert vel að hafa augun á boltanum í deildinni og verið á góðu skriði þar. Ég er ánægður með taktinn í liðinu að undanförnu og ég er spenntur að mæta góðu Fylkisliði í kvöld,“ segir Magnús Már í samtali við Vísi. Það er sögulegt fyrir Mosfellinga að komast í undanúrslitin. „Við höfum aldrei farið áður í undanúrslit í bikarnum. Það er ný upplifun fyrir okkur og mjög spennandi. Það er mikil stemning í bæjarfélaginu, hjá stuðningsmönnum og í liðinu að takast á við þetta,“ segir Magnús og bætir við: „Fylkir er með mjög öflugt lið og með reyndan og góðan þjálfara. Við þurfum að vera á okkar besta degi til að ná markmiðinu um að komast í úrslitaleikinn.“ Það má því búast við því að stuðningsfólk fjölmenni í Árbæinn á leik kvöldsins sem hefst klukkan 19:30. „Það verður upphitun á Ásláki frá klukkan hálf fimm og mikið húllumhæ. Svo er rútuferð í Árbæinn. Þetta verður mjög skemmtilegt og mikil stemning hjá stuðningsmönnum. Maður finnur meðbyr og það er mikilvægt fyrir okkur að fá alvöru stuðning úr stúkunni. Mosfellingar hafa staðið sig vel í því í stórleikjum undanfarin ár og ég hef engar áhyggjur af öðru en að það verði raunin í kvöld.“
Mjólkurbikar karla Lengjudeild karla Afturelding Fylkir Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira