Breytingar boðaðar í Garðabæ Valur Páll Eiríksson skrifar 27. október 2026 14:55 Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður knattspyrnumála, Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar, og Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Vísir/Sigurjón Yfirmaður knattspyrnumála hefur verið ráðinn í fyrsta sinn í Garðabæ en Viktor Bjarki Arnarsson var kynntur til leiks í dag. Rúnar Páll Sigmundsson sem stýrði liðinu um átta ára skeið á þá að leiða liðið inn í nýja tíma.
Halldór Orri Björnsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, kynnti þá Viktor Bjarka og Rúnar Pál til leiks á blaðamannafundi á Samsung-vellinum í dag. Þar voru boðaðar allsherjar breytingar, þar á meðal endurvakning ráða innan knattspyrnudeildarinnar á við meistaraflokksráð karla og kvenna, barna- og unglingaráð og fleira til. „Ég er bara mjög ánægður að hafa fengið símtalið frá Halldóri og ég hefði ekki yfirgefið Gróttu fyrir neinn annan klúbb,“ segir Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. „Þetta var mjög þungt sumar karlamegin og við ætlum að reyna að fá Stjörnusamfélagið með okkur,“ segir Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar hjá félaginu. „Ég tel ekki Stjörnuna vera á þeim stað sem hún á að vera á. Klúbburinn er svolítið klofinn. Með ráðningu Rúnars tel ég að verði auðveldara að þétta hópinn aftur,“ segir Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður knattspyrnumála Stjörnunnar. Var búinn með tíma sinn í Garðabæ „Ég var eiginlega búinn með minn tíma hér. En síðan hvernig þetta þróaðist í sumar, bæði árangurinn og neikvæðnin í garð Stjörnunnar, mér fannst það leiðinlegt. Því fannst mér ég geta gert eitthvað fyrir félagið mitt. Þegar símtalið kom þá stökk ég á það,“ segir nýi þjálfarinn Rúnar Páll sem stýrði liðinu áður milli 2013 og 2021. „Það er fullt af fólki innan Garðabæjar sem er tilbúið að hjálpa til svo við gefum fleirum tækifæri að leggja hönd á plóg. Með því að mynda meistaraflokksráð karla og kvenna aftur og barna- og unglingaráð erum við að efla umgjörðina í kringum þessar deildir,“ segir Halldór Orri. Rúnar Pál hlakkar þá til að komast út á gras. „Þeir fá smá frí gaurarnir núna. Við ætlum að byrja að æfa hérna 1. desember. Þá byrjar fjörið,“ segir Rúnar Páll. Þú telur niður á meðan. „Já, heldur betur maður.“ Innslag af fundinum má sjá í spilaranum að ofan. Viðtöl við þremenningana má sjá í heild hvert fyrir sig hér fyrir neðan.
Stjarnan Besta deild karla Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“