Fótbolti

Lof­syngur Frey og Al­freð: „Mesta um­breyting síðari tíma“

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson hefur gjörbreytt stöðu norska stórveldisins Rosenborg á skömmum tíma.
Freyr Alexandersson hefur gjörbreytt stöðu norska stórveldisins Rosenborg á skömmum tíma. Getty/Craig Foy

Sérfræðingur TV 2 í Noregi segir umbreytinguna á liði Rosenborg sögulega mikla frá því að Alfreð Finnbogason fékk sinn fyrrverandi læriföður Frey Alexandersson sem þjálfara hjá liðinu í sumar. Ekki bara í stigum talið heldur í skemmtanagildi.

Rosenborg vann 3-0 á útivelli gegn HamKam um helgina og hefur nú unnið tíu leiki af þrettán frá því að Freyr tók við, aðeins tapað tveimur, og flogið upp norsku úrvalsdeildina í fótbolta. Liðið er komið upp í 4. sæti og aðeins þremur stigum á eftir Molde í 3. sæti þegar sex umferðir eru eftir.

Rosenborg var í fallsæti en gæti nú endað í Evrópusæti eftir að hafa veðjað á Íslendinginn sem þá var nýbúið að reka frá Brann flestum að óvörum.

„Ég get aðeins talað út frá mínum fullorðinsárum, en: Þetta hlýtur að vera mesta umbreyting síðari tíma. Það er varla hægt að trúa þessu,“ segir Yaw Amankwah, fótboltasérfræðingur TV 2, við Nettavisen.

Hann er ekki bara hrifinn af úrslitunum undir stjórn Freys:

„Fótboltinn sem Rosenborg spilaði í vor var blóðlaus og ótrúlega leiðinlegur og þunglamalegur. Núna sest ég nánast niður með popp til að njóta leikjanna,“ segir Amankwah af ákefð.

Ákvörðun stjórnenda Rosenborg um að ráða Frey, eins og Alfreð Finnbogason yfirmaður fótboltamála mælti með, virðist þegar hafa margborgað sig.

„Ég skal vera 100% hreinskilinn. Við áttum ekki von á að þetta gerðist svona hratt. Við vorum með áætlun þar sem fyrsta markmiðið var að komast upp úr fallbaráttunni og koma okkur í góða stöðu fram í september,“ sagði Alfreð. Sjálfstraust hafi sárlega vantað í leikmannahópinn þegar farið var inn í HM-hléið í júní.

„Það skiptir miklu máli í fótbolta. Svo komu Jonathan (Hartmann, aðstoðarþjálfari) og Freyr inn með mikla orku og skýra áætlun. Leikmennirnir hafa fengið góða reynslu og nýtt sjálfstraust. Maður getur talað eins mikið og maður vill um aðferðir en þegar þeir sjá að þetta virkar og trúa á það þá lítur þetta betur út, það er einfalda skýringin,“ sagði Alfreð.

Úr BA-námi í Bergen í meistaranám hjá Rosenborg

Hann nýtti tækifærið til að skjóta aðeins á forráðamenn Brann þegar talið barst að því að Freyr hefði sinnt svipuðu starfi hjá því félagi.

„Munurinn er sá að RBK hefur unnið marga titla og það eru aðeins aðrar kröfur hér. Við erum stærsta félagið í Noregi og viljum hafa bestu leikmennina og þjálfarana. Freyr lærði margt í BA-náminu sínu í Bergen, en núna er hann byrjaður í meistaranáminu sínu hér hjá Rosenborg.“

Amankwah segir að það hljóti einmitt að vera sérstaklega sárt fyrir stuðningsmenn Brann að sjá hvernig Rosenborg gengur undir stjórn Freys.

„Ég held það, en um leið verð ég að hrósa RBK fyrir að taka þjálfara sem var rekinn hjá keppinaut og láta það ganga svona vel. Það er áhætta sem ekki margir hefðu þorað að taka. Alfreð og stjórnendur RBK eiga heiður skilinn,“ sagði Amankwah en varaði þó við að forráðamenn Rosenborg mættu ekki sofna á verðinum því ljóst væri að stærstu stjörnur liðsins yrðu eftirsóttar. Það breytti því ekki að umbreytingin á liðinu væri lygileg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×