Íslenski boltinn

Tíma­bilið von­brigði en bjartir tímar fram­undan

Andri Broddason skrifar
Tryggvi Hrafn Haraldsson spilaði vel á tímbailinu þrátt fyrir að staða liðsins var vonbrigði.
Tryggvi Hrafn Haraldsson spilaði vel á tímbailinu þrátt fyrir að staða liðsins var vonbrigði. Anton/Vísir

Tryggvi Hrafn Haraldsson var stoðsendingahæsti leikmaður Bestu deildar karla þrátt fyrir erfitt gengi Vals. Hann náði að gefa 16 stoðsendingar ásamt því að skora tíu mörk.

Tímabilið endaði ekki vel fyrir Val þar sem liðið endaði í áttunda sæti deildarinnar eftir 6-0 tap fyrir Stjörnunni í lokaumferð deildarinnar. Tryggvi Hrafn sagði tímabilið hafa verið vonbrigði sem gerir lokaleik tímabilsins lýsandi fyrir tímabilið.

„Þetta er vonbrigðartímabil fyrir klúbbinn. Við endum í neðri hlutanum og kvennaliðið fellur þannig hjá knattspyrnudeildinni eru mikil vonbrigði. Við enduðum í öðru sæti í fyrra á eftir frábæru liði Víkinga og töpuðum í bikarúrslitum og fallið úr því í áttunda sætið er bara vonbrigði.“

Klippa: Stúkan: Tryggvi Hrafn Haraldsson

Gögnin sína annað

Tryggvi Hrafn hefur stundum verið gagnrýndur fyrir að vinna ekki nóg og það sérstaklega í vörn. Honum sjálfum finnst þó gagnrýnin ósanngjörn og segist vera með gögnin til þess að styðja það.

„Mér finnst ekki jafn skemmtilegt að verjast og að sækja en ef þú vilt sjá hlaupatölur þá held ég að þjálfarinn sé tilbúinn að senda þér þær glaður. Ég er yfirleitt hæstur í flestum hlaupalegum tölfræðiþáttum,“ sagði Tryggvi Hrafn við Baldur Sigurðsson í lokaþætti Stúkunnar.

Á tímabilinu skrifaði Tryggvi Hrafn undir samning við ÍA en kláraði tímabilið hjá Val. Oft þegar leikmenn eru að fara frá félagi þá minnkar ákefðin þeirra í leikjum en það gerðist ekki hjá Tryggva. Hann hélt áfram sama dampi og varð að launum stoðsendingahæstur í deildinni.

Stoðsendingahæstur þrátt fyrir fjarveru markaskorara

Nokkrir góðir markaskorarar hafa verið hjá Val undanfarið en þeir voru fjarverandi stóran hluta tímabilsins. Patrick Pedersen, markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, kom til baka undir lok tímabils eftir að hafa slitið krossband. Jónatan Ingi Jónsson er einnig mikill markaskorari en hann meiddist í síðasta leik áður en Besta deildin byrjaði.

„Það var þvílíkur munur að vera ekki að spila með þeim í hverri viku. Patrick Pedersen er líklega besti leikmaður deildarinnar á þessum áratug og Jónatan er búinn að vera frábær eftir að hann kom til Vals og ég saknaði þeirra virkilega í sumar.“

Uppeldisfélag Tryggva Hrafns er ÍA og er hann því að snúa aftur heim. Hann er spenntur fyrir komandi tímum með félaginu þar sem verið er að setja mikinn metnað í félagið.

„Menn eru að setja mikið púður í félagið og eru staðráðnir í að koma félaginu á þann stað sem þeir vilja að það sé á. Það er komin frábær aðstaða, nýtt klúbbhús með frábærum klefum. Sú aðstaða er að verða ein besta á landinu þegar gervigrasið verður klárt þannig að ég er spenntur að koma heim.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×