Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2026 22:09 Hinn 16 ára Max Dowman gekk svekktur af velli eftir að rauða spjaldið fór á loft. Getty/Stuart MacFarlane Enska D-deildarliðið Fleetwood Town kom öllum á óvart með því að slá út sjálfa Englandsmeistara Arsenal í kvöld og tryggja sér þar með sæti í 8-liða úrslitum deildabikarsins í fótbolta.
Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið jöfn að loknum 90 mínútum, 1-1. Jay Lynch, markvörður Fleetwood, varði fjórðu spyrnu Arsenal, frá Bruno Guimaraes, og í kjölfarið tryggðu heimamenn sér sigur en þeir nýttu allar fimm spyrnur sínar. Arsenal-menn voru fljótir að hverfa inn til búningsklefa, sársvekktir eftir þetta óvænta tap, en leikmenn og stuðningsmenn Fleetwood ærðust af fögnuði og glöddust saman úti um allan völl. Jay Lynch mun sjálfsagt aldrei gleyma kvöldinu þegar hann tryggði Fleetwood Town sigur gegn Arsenal með því að verja víti frá Bruno Guimaraes.Getty/Carl Recine Leikurinn var reyndar stöðvaður strax á 2. mínútu vegna dularfulls drónaflugs en eftir að leikmenn höfðu beðið úti á velli í um það bil sjö mínútur var á endanum hægt að halda áfram að spila. Í venjulegum leiktíma voru Arsenal-menn mun líklegri til að tryggja sér sigur. Aaron Loupalo-Bi kom þó heimamönnum yfir eftir 20 mínútna leik við gríðarlegan fögnuð á 5.300 manna leikvangi Fleetwood sem heitir einmitt Highbury, rétt eins og gamli heimavöllur Arsenal. Arsenal stillti upp hálfgerðu varaliði en þó með Kai Havertz, Viktor Gyökeres og Myles Lewis-Skelly inná. Martin Ödegaard og Ben White komu svo inná í upphafi seinni hálfleiks og Ödegaard hressti mjög upp á sóknarleik Arsenal. Gyökeres jafnaði svo metin á 50. mínútu af miklu harðfylgi og eftir það óðu Arsenal-menn, sér í lagi Havertz og Lewis-Skelly, í færum sem þeim tókst ekki að nýta. Stjörnur Arsenal stóðu þétt saman í vítaspyrnukeppninni en urðu að sætta sig við tap.Getty/Stuart MacFarlane Arsenal-menn voru svo manni færri síðustu fimm mínútur leiksins eftir að hinn 16 ára Max Dowman missti stjórn á sér í augnablik og uppskar rautt spjald. Dowman hafði verið með boltann úti við hliðarlínu í baráttu við leikmenn Fleetwood þegar Harrison Neal náði boltanum með glæfralegri tæklingu. Dowman svaraði fyrir sig með því að ýta öðru hnénu í Neal og það dugði til að rauða spjaldið færi á endanum á loft eftir mikil læti á milli leikmanna. Manni færri komust gestirnir hins vegar í algjört dauðafæri þegar Ben White fékk boltann við fjærstöng, aleinn, en skot hans var varið af Jay Lynch og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni eins og fyrr segir. Næsti leikur Arsenal er stórleikur við Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en Fleetwood tekur á móti Bristol Rovers á laugardaginn og freistar þess að þokast upp úr 18. sæti ensku D-deildarinnar.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Sjá meira