KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans

Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hreint agalega og var refsað fyrir það.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég er ekkert ó­ró­legur“

Hallgrímur Jónasson prísar sig sælan að komast með stig frá Akranesi eftir 1-1 jafntefli hans manna í KA við ÍA í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í kvöld. Hann er ánægður með sína menn og segir þetta sterkt stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Oliver keyptur til KA

KA hefur gengið frá kaupum og gert þriggja ára samning við Oliver Heiðarsson en hann kemur til félagsins frá Lokomotiva Zagreb í Króatíu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Gáfum ó­dýr mörk“

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir óhagstæð úrslit hans manna sem töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Heyrum varla í hvor öðrum“

Valsmenn eru komnir í 2-0 í undanúrslitaeinvígi sínu gegn KA í Olís deild karla. Liðin mættust öðru sinni í KA-heimilinu í dag og lauk leiknum með þriggja marka sigri gestanna, lokatölur 30-33 eftir æsispennandi leik.

Handbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Valur - KA 39-21 | Al­gjör slátrun á Hlíðar­enda

Að vera slátrað er hvorki geðsleg né virðuleg lýsing á atburðum sem gerast í íþróttakappleikjum. Hins vegar er hægt að nota fá önnur orð um leik Vals og KA í fyrsta leik liðanna í undanúrslita einvígi liðanna í handbolta, þar sem spilamennska KA var hvorki geðsleg né virðuleg. Lokatölur á Hlíðarenda 39-21 fyrir Val, sem slátraði KA.

Handbolti
Fréttamynd

„Þeir refsa fyrir öll mis­tök og þeir refsuðu vel í dag“

„Þetta var virkilega vont. Við bara grófum okkar eigin gröf með því að byrja leikinn afleitlega sóknarlega og komast ekki í takt í sókn,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA í handbolta, eftir risatap gegn Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra á milli. Lokatölur 39-21 fyrir Val.

Handbolti