KR tók meistarana í kennslustund 19. október 2008 21:38 Jakob Sigurðarson var að vanda atkvæðamikill í liði KR Mynd/Daníel
KR-ingar unnu 93-72 stórsigur á Keflavík í stórleik kvöldsins í Iceland Express deild karla í körfubolta . KR-ingar byrjuðu leikinn af miklum kraft en náðu ekki að hrista gestina af sér. KR hafði yfir 27-26 eftir fyrsta leikhluta, en tók fljótlega öll völd á vellinum og höfðu yfir í hálfleik 55-37. KR-liðið skoraði hvorki meira né minna en 12 þriggja stiga körfur í hálfleiknum og héldu þeir sýningunni áfram í síðari hálfleik. Keflvíkingar náðu að kafla að rétta aðeins úr kútnum um miðbik þriðja leikhlutans, en þá spýttu heimamenn í lófana og komu muninum upp í 20 stig á ný. Landsliðsmennirnir Jakob Sigurðarson (23 stig), Helgi Már Magnússon (22 stig) og Jón Arnór Stefánsson voru atkvæðamestir hjá KR í kvöld, en Gunnar Einarsson (17 stig) og Sverrir Sverrisson (16 stig) voru bestir hjá Keflavík. Tindastóll lagði FSu fyrir norðan 86-72 þar sem Darrell Flake skoraði 22 stig og hirti 10 fráköst fyrir Stólana en Vésteinn Sveinsson var atkvæðamestur hjá FSu með 19 stig. Þór Akureyri vann stórsigur á Breiðablik 95-71. Cedric Isom skoraði 29 stig fyrir Þór en Kristján Sigurðsson skoraði 15 stig fyrir Blikana. Einn leikur var í Iceland Express deild kvenna. Valur vann óvæntan sigur á Haukum 65-64 þar sem úrslitin réðust á síðustu sekúndunum.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira