Körfubolti

Umfjöllun: KR-grýla Grindvíkinga lifir enn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þorleifur Ólafsson og félagar fóru tómhentir úr Vesturbænum líkt og oft áður.
Þorleifur Ólafsson og félagar fóru tómhentir úr Vesturbænum líkt og oft áður. Mynd/Daníel

Enginn Jón Arnór Stefánsson, enginn Jakob Örn Sigurðarson, enginn Helgi Már Magnússon en niðurstaðan sú sama. KR vann Grindavík, 84-82, í Vesturbænum í kvöld.

KR því búið að vinna alla leiki sína í deildinni en Grindavík búið að tapa tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni. Ekki beint sú byrjun sem var vænst af Grindavík en menn þar á bæ þurfa að girða sig í brók.

KR var sterkara liðið allan tímann í kvöld. Þeir mættu mikið grimmari til leiks, spiluðu flottan sóknarbolta og voru mikið duglegri að hirða til sín fráköst.

Þeir voru alltaf skrefi á undan en Grindavík var heillum horfið nánast allan leikinn. KR-liðið gaf allt of mikið eftir í síðari hálfleik en sem betur fer fyrir þá var hittni Grindvíkinga slök. Þeir nýttu ekki tækifærin sem þeir fengu til að fá eitthvað út úr leiknum.

Grindavík andaði aðeins ofan í hálsmálið hjá KR undir lokin en náði aldrei að jafna. Þegar á reyndi voru taugar KR-inga sterkari og þeir unnu sanngjarnan sigur.

Semaj Inge átti magnaða spretti og tróð tvisvar með lygilegum tilþrifum. Fannar var prímusmótorinn lengi vel, skoraði flott stig, reif niður fráköst og dreif sitt lið áfram. Finnur Atli og Jón Orri áttu einnig flottar innkomur.

Brenton og Þorleifur voru nánast einu mennirnir í liði Grindavíkur sem voru með einhverri meðvitund í leiknum. Ómar átti spretti en mikið munaði um að Páll Axel olli enn eina ferðina gríðarlegum vonbrigðum í DHL-höllinni þar sem hann virðist varla getað spilað góðan leik.

KR-Grindavík  84-82

Stig KR: Semaj Inge 21, Fannar Ólafsson 17, Tommy Johnson 13, Brynjar Þór Björnsson 11, Finnur Atli Magnússon 10, Jón Orri Kristjánsson 5, Ólafur Már Ægisson 5, Skarphéðinn Ingason 2.

Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 21, Þorleifur Ólafsson 20, Páll Axel Vilbergsson 15, Ómar Sævarsson 12, Arnar Freyr Jónsson 7, Ármann Vilbergsson 3, Ólafur Ólafsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×