Körfubolti

Hörður Axel: Erfitt að elta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson í leik með Keflavík.
Hörður Axel Vilhjálmsson í leik með Keflavík. Mynd/Stefán
Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var vitanlega ósáttur við tap sinna manna fyrir KR á heimavelli í kvöld.

KR vann leikinn, 100-85, eftir að hafa skorað fyrstu fimmtán stig leiksins.

„Við virtumst ekki mættir til leiks nema þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Fyrir vikið vorum við að elta allan leikinn og það var erfitt," sagði Hörður Axel.

Keflavík náði þó að koma sér aftur inn í leikinn og liðið kom sér í forystu um miðjan fjórða leikhluta.

„En við hættum að spila þegar mest lá við. Við spiluðum á köflum ágætlega en í fjórða leikhluta var engu líkara en leikmenn ætluðu sjálfir að klára leikinn upp á eigin spýtur. Það er ekki vænlegt til árangurs."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×