Sigurður til Njarðvíkur: Valur vék ekki fyrir mér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. október 2009 16:00 Sigurður Ingimundarson. Mynd/Stefán
Sigurður Ingimundarson var í dag ráðinn þjálfari körfuboltaliðs Njarðvíkur en í gær var tilkynnt að Valur, bróðir Sigurðar, myndi hætta þjálfun liðsins. Sigurður var þjálfari Keflavíkur til margra ára en fór til Svíþjóðar í sumar þar sem hann tók við þjálfun Solna Vikings. Hann hætti hjá því félagi í síðustu viku. „Ég átti ekki von á því fyrir stuttu síðan að ég myndi koma aftur til Íslands og taka við Njarðvík. En stundum atvikast málin svona. Ég ákvað að koma heim og þá kom þetta upp," sagði Sigurður. Hann segir að Valur hefði ekki hætt hjá Njarðvík svo hann gæti tekið við liðinu. „Það er að sjálfsögðu ekki þannig enda væri það fáránlegt. Ég skil þó vel að einhver kynni að hafa hoppað á þá kenningu en það er þó alls ekki þannig. Þetta var einfaldlega röð tilviljana." Sigurður þekkir vel til leikmanna Njarðvíkur. „Ég hef þjálfað flesta þessa stráka, bæði í landsliðinu og í Íþróttaakademíunni. Þetta er því ekkert svo ókunnugt fyrir mig." Njarðvík tapaði í gær fyrir Grindavík í úrslitum Powerade-bikarkeppni karla og flestir sem reikna með því að liðið verði sterkt í vetur. Sigurður ætlar þó að bíða með allar yfirlýsingar. „Ég ætla nú að mæta á eina æfingu áður en ég fer að tjá mig um eitthvað slíkt," sagði hann í léttum dúr.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira