Körfubolti

Öruggur sigur KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í kvöld.
Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í kvöld. Mynd/Vilhelm

KR vann öruggan nítján stiga sigur á Haukum á Ásvöllum í Iceland Express deild kvenna í kvöld, 81-62.

KR-ingar tóku öll völd í leiknum strax frá upphafi og voru með fjórtán stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 23-9. Staðan í hálfleik var svo 42-23, KR í vil.

Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í leiknum og skoraði 34 stig og tók sjö fráköst. Heather Ezell var stigahæst leikmanna Hauka með 23 stig.

Stig Hauka: Heather Ezell 23, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12, Margrét Rósa Hálfdánardótir 8, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 7, Guðrún Ósk Ámundardóttir 6, Auður Íris Ólafsdóttir 4, Helena Brynja Hólm 2.

Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 34, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 15, Helga Einarsdóttir 10, Signý Hermannsdóttir 8, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 6, Unnur Tara Jónsdóttir 6, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×