Formúla 1

Button verður sókndjafur á Spa

Jenson Button sést hér ásamt Ólafi Guðmundssyni, sem dæmt hefur tvö Formúlu 1 mót á þessu ári.
Jenson Button sést hér ásamt Ólafi Guðmundssyni, sem dæmt hefur tvö Formúlu 1 mót á þessu ári.

Uppáhaldsbraut ökumanna, Spa í Belgíu er á dagskrá um næstu helgi og Jenson Button, forystumaðurinn í stigamótinu telur að hann þurfi að vera sókndjarfari en í síðustu mótum.

"Það er betra að vera þolgóður og aka skynsamlega, en klessa bílinn, en það er ekki nóg að fá aðeins tvö stig úr móti eins og ég gerði um helgina, þegar tíu eru í boði", sagði Button. Hann varð sjöundi og hefur ekki landað sigri í nokkrum mótum í röð.

"Ég ætla að vera sókndjarfari á Spa brautinni, bæði hvað varðar keppnisáætlun og notkun á bíl og búnaði. Ef ég gríp ekki til þessa atferlis þá munu keppinautar mínir naga forskot mitt í burtu og ég er heppinn hvað þeimn hefur gengið misvel í síðustu mótum.

Button er með 18 stiga forskot á Rubens Barrichello, sem vann mótið um helgina.

"Barrichello var fljótur um helgina, en Vettel og Webber fengu engin stig og ég er með 20.5 stig á Webber. En Red Bull menn verða sterkir á Spa, en ég hef ekki trú á að McLaren bíllinn verði eins öflugur á Spa og í Valencia um helgina. Ég verð að ná góðum tíma í tímatökum, en það er svo mjótt á munum að hvert sekúndubrot skiptir máli", sagði Button.

Sjá brautarlýsingu og stigastöðuna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×