Fótbolti

Ísland upp um níu sæti á heimslista FIFA

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán

Íslenska landsliðið í knattspyrnu fór upp um níu sæti á heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem gefinn var út í dag.

Ísland er nú í 87. sæti en hefur síðan síðasti listi var gefinn út unnið tvo vináttulandsleiki - gegn Georgíu og Suður-Afríku - og gert jafntefli við Noreg í undankeppni HM 2010.

Ísland fékk 392,5 stig fyrir Noregsleikinn, 352,43 stig fyrir sigurinn á Suður-Afríku og 264 stig fyrir sigurinn á Georgíu.

Ísland hefur hæst náð 75. sæti á heimslistanum á þessu ári en það var í mars síðastliðnum.

Ísland er nú í 40. sæti af alls 53 Evrópuþjóðum og fór upp um tvö sæti frá síðasta mánuði. Liðið hoppaði þar með upp fyrir Moldóvu og Albaníu. Næstu Evrópulið fyrir ofan Ísland eru Wales, Svartfjallaland, Hvíta-Rússland og Belgía.

Suður-Afríka hrundi um tólf sæti eftir að hafa tapað fjórum af fimm leikjum sínum á undanförnum mánuði. Liðið er nú í 85. sæti og hefur ekki verið neðar á listanum síðan 1993.

Engin breyting er á meðal fjögurra efstu þjóða á heimslistanum. Brasilía, Spánn, Holland og Ítalía eru efst á blaði en Þýskaland er nú í fimmta sæti. Þjóðverjar voru í síðasta mánuði ásamt Ítölum í 4.-5. sæti.

Diego Maradona og hans menn í Argentínu hoppa upp um tvö sæti og eru nú í sjötta sæti listans. England er í sjöunda sæti en næst koma Króatía, Frakkland og Portúgal.

Af þessum þjóðum hafa þau tvö síðastnefndu ekki enn tryggt sér sæti á HM í Suður-Afríku á næsta ári en Króatía er hins vegar fallið úr leik.

Króatar og Tékkar eru einu þjóðirnar meðal þeirru 20 efstu sem náðu ekki að tryggja sér farseðilinn til Suður-Afríku. Þrettán eru þegar búnar að koma sér á HM og fimm þurfa að fara í umspil.

Aðeins tvær þjóðir sem munu taka þátt í HM í Suður-Afríku á næsta ári eru ekki á meðal efstu 50 á heimslistanum. Það eru gestgjafarnir (85. sæti) og Norður-Kórea sem er í 91. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×