Körfubolti

Subwaybikar karla: Njarðvík lagði KR

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Njarðvíkingar fagna í kvöld.
Njarðvíkingar fagna í kvöld. Mynd/Daníel

Stórleikur 32-liða úrslitanna í Subwaybikar karla fór fram í Ljónagryfjunni í kvöld er Íslandsmeistarar KR heimsóttu Njarðvík.

Þessi sömu lið mættust á dögunum og þá hafði Njarðvík nauman sigur. Þeir endurtóku leikinn í kvöld og unnu með fjórum stigum, 90-86.

KR lengi vel með yfirhöndina en Njarðvíkingar voru sterkari í lokaleikhlutanum.

Nánari umfjöllun ásamt viðtölum kemur á Vísi hér á eftir.

Njarðvík-KR 90-86

Stig Njarðvíkur:
Magnús Gunnarsson 28, Jóhann Árni Ólafsson 18, Guðmundur Jónsson 11, Friðrik Stefánsson 10, Páll Kristinsson 10, Hjörtur Einarsson 6, Rúnar Erlingsson 4, Kristján Sigurðsson 3.

Stig KR: Semaj Inge 19, Brynjar Þór Björnsson 14, Finnur Atli Magnússon 14, Fannar Ólafsson 11, Tommy Johnson 9, Darri Hilmarsson 7, Skarphéðinn Ingason 7, Jón Orri Kristjánsson 5.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×