Formúla 1

Hamilton vill ólmur keppa

Lewis Hamilton vill keppa sem fyrst, en verður að bíða næsta árs.
Lewis Hamilton vill keppa sem fyrst, en verður að bíða næsta árs. mynd: kappakstur.is

Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren þurfti að sjá á eftir meistaratitilinum í hendur Jenson Button, en segist hafa lært mikið á stormasömu ári.

Það blés ekki byrlega í byrjun, þar sem Hamilton reyndist sekur um óheiðarlega framkomu við dómara í fyrsta móti ársins, þar sem Ólafur Guðmundsson, íslenskur dómari kom við sögu.

Hamilton sagði ósátt á fundi með dómurum ásamt liðsstjóra sínum sem var rekinn frá McLaren. Þá virkaði McLaren bíllinn ekki sem skyldi fyrri hluta tímabilsins og þetta fór í skapið á Hamilton á meðan allt gekk eins og í sögu hjá Button.

"Ég hef lært mikið um ásetning og markmið. Hluti sem maður tekur sem sjálfsagðan hlut þegar vel gengur. En ég hef vaxið mikið sem persóna og ökumaður á þessu ári. Ég hef þroskast á erfiðleikunum", sagði Hamilton um gang mála í ár.

"Í raun hefur þetta orðið til þess að ég hef færst nær samstarfsmönnum mínum og við verðum sterkari en ella á næsta ári. Höfum vaxið saman. Ég ætla að æfa af kappi í vetur, bæði heima og í sérstöku verkefni í Finnlandi. Vill mæta enn sterkari á næsta ári."

"Ég gæti alveg hugsað mér að keppa strax í næstu viku. Ég elska bara Formúlu 1 og get bara ekki beðið eftir að keyra McLaren bílinn á ný", sagði Hamilton glahðhlakkalega.

Sjá mótaskrá 2010






Fleiri fréttir

Sjá meira


×