Formúla 1

Sauber fær sæti BMW í Formúlu 1

Peter Sauber keypti aftur búnað sem hann seldi BMW fyrir fjórum árum.
Peter Sauber keypti aftur búnað sem hann seldi BMW fyrir fjórum árum. mynd: Getty Images

Peter Sauber fær rásleyfi fyriir keppnislið sitt í Formúlu 1 á næsta ári, en FIA tilkynnti þetta í dag. Sauber keypti búnað BMW liðsins í Sviss og mun nota Ferrari vélar á næsta ári.

Sauber átti liðið, en seldi það til BMW fyrir fjórum árum. BMW ákvað hinsvegar að hætta í Forrmúlu 1 á dögunum eins og Toyota. Engu að síður verða þrettán lið á ráslínunni á næsta ári, en tíu lið voru í ár.

Sauber fannst ómögulegt að leggja niður lið sem hann hafði byggt upp í hartnær tuttugu ár, en hann átti 20% í BMW liðinu eftir að hann seldi meirihlutann.

Ekki er búið að ráða í stöður ökumanna hjá Sauber, enda hafði forgangt að tryggja þátttökurétt í mótum ársins. Nítján mót verða á næsta ári í stað sautján í ár.

Sjá mótaskrá 2010






Fleiri fréttir

Sjá meira


×