Fótbolti

Inter í vandræðum með tíu leikmenn Genoa

Elvar Geir Magnússon skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.

Ítalíumeistarar Inter lentu í basli með Genoa í sextán liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld. Genoa lék einum manni færri frá 19. mínútu en þrátt fyrir liðsmuninn fór leikurinn í framlengingu.

Adriano kom Inter yfir á 75. mínútu en nokkrum mínútum síðar jafnaði Rossi fyrir Genoa. Staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar.

Í framlengingunni sást að leikmenn Genoa voru orðnir þreyttir og skoruðu Cambiasso og Zlatan Ibrahimovic fyrir Inter sem vann 3-1 sigur. Inter mun mæta Roma í átta liða úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×