Körfubolti

Logi leikur ekki með Njarðvíkingum í kvöld

Logi Gunnarsson
Logi Gunnarsson Mynd/Ooj

Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson missir í kvöld af öðrum leik sínum í röð með liði Njarðvíkur í Iceland Express deildinni þegar liðið sækir granna sína í Keflavík heim.

Logi hefur átt við þrálát ökklameiðsli að stríða lengst af vetrar og í samtali við Vísi sagðist Valur Ingimundarson þjálfari Njarðvíkur ætla að sjá til með hvort hann teflir Loga fram í næsta leik liðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×