Skoraði 8 stig á 11 sekúndum 28. apríl 2009 17:45 James Jones og Dwyane Wade, leikmenn Miami Heat Nordic Photos/Getty Images
Varamaðurinn James Jones hjá Miami Heat í NBA deildinni átti magnaða innkomu í leik liðsins gegn Atlanta í úrslitakeppninni í nótt sem leið. Jones afrekaði að skora 8 stig á aðeins 11 sekúndum undir lok annars leikhlutans. Um var að ræða tvær þriggja stiga körfur, en brotið var á honum í báðum skotunum og hann setti niður sitt hvort vítið í kjölfarið. Jones skoraði alls 19 stig í leiknum en það dugði Miami ekki, því liðið tapaði leiknum 81-71 á heimavelli sínum og því er staðan jöfn 2-2 í þessu hörkueinvígi. Útisigurinn var sá fyrsti í tólf tilraunum hjá Atlanta, sem hafði ekki unnið útileik í úrslitakeppni í meira en áratug. Aðalstjarna Miami, skotbakvörðurinn Dwyane Wade, var svipur hjá sjón í leiknum í nótt og á við margvísleg meiðsli að stríða, svo ekki er hægt að segja að útlitið sé gott hjá ungu liði Miami. Sigurvegarinn í rimmu Atlanta og Miami fær það erfiða verkefni að mæta Cleveland í næstu umferð úrslitakeppni Austurdeildarinnar. Smelltu hér til að sjá stöðu mála í úrslitakeppninni á einfaldan hátt. Efstu átta liðin eru í Austurdeildinni og átta neðstu í Vesturdeildinni. Eins og sjá má á myndinni eru Cleveland og LA Lakers einu liðin sem komin eru áfram í næstu umferð.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Freyr segir belgíska blaðið ljúga Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Sjá meira