Mesti bikarmeistarablúsinn í átta ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2009 14:42 Stjörnumenn fögnuðu bikarmeistaratitlinum vel og lengi,. Mynd/Vilhelm
Bikarmeistarar Stjörnunnar hafa ekki unnið leik í Iceland Express deild karla í körfubolta síðan að þeir lyftu bikarnum í Laugardalshöllinni 15. febrúar síðastliðinn. Stjarnan tapaði þriðja leiknum í röð þegar þeir sóttu nýliða Breiðabliks heim í Smárann í gær en áður hafði liðið tapað fyrir KR og Keflavík. Þetta er lengsta taphrina bikarmeistara eftir bikarúrslitaleik síðan að ÍR-ingar töpuðu þremur síðustu leikjum sínum árið 2001 eftir að hafa unnið bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. ÍR komst ekki í úrslitakeppnina og spilaði því ekki fleiri leiki á tímabilinu og Stjarnan setur því nýtt óvinsælt met tapi þeir fjórða leiknum í röð þegar þeir fá Snæfell í heimsókn á fimmtudagskvöld. ÍR-ingar misstu fyrir vikið af úrslitakeppninni en fyrir bikarúrslitaleikinn 2001 voru Breiðhyltingar í 8. til 9. sæti, með jafnmörg stig og Skallagrímur en með verri árangur í innbyrðisviðureignum. Fyrsti leikur ÍR eftir bikarúrslitin var síðan á móti Skallagrími og tapaði ÍR honum með aðeins tveimur stigum á heimavelli sínum í Seljaskóla. Frá því að bikarúrslitaleikurinn var færður inn á mitt tímabil árið 1993 hafa fjórir bikarmeistarar tapað tveimur fyrstu leikjum sínum eftir úrslitaleikinn. Auk ÍR (2001) og Stjörnunnar (2009) þá töpuðu Grindvíkingar fyrstu tveimur leikjum sínum eftir að þeir unnu bikarinn bæði 2000 og 2006. Lið ÍR 2001 og Stjörnunnar í dag eiga líka það sameiginlegt að Ólafur Jónas Sigurðsson spilaði með báðum þessum liðum. Það er þó ekki að kenna honum um ófarir liðanna því í báðum tilfellum hefur hann hækkað framlag sitt eftir bikarúrslitaleikinn. Tímabilið 2000-01 þá var Ólafur Jónas með 4,0 stig og 1,9 stoðsendingar að meðaltali í 18 leikjum fyrir bikarúrslit en 11,3 stig og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í þremur leikjum liðsins eftir að bikarmeistaratitilinn var í höfn. Í vetur var Ólafur með 5,1 stig að meðaltali fyrir bikarúrslit en hefur skorað 10,7 stig að meðaltali í síðustu þremur leikjum Stjörnunnar.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira