85 prósent oddaleikjanna hafa unnist heima Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2009 16:30 Stjörnumenn hafa ekki söguna með sér gegn Snæfelli í kvöld. Mynd/Vilhelm
Snæfell og Stjarnan mætast í kvöld í oddaleik í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. Það lið sem vinnur leikinn sem fram fer í Stykkishólmi er komið í undanúrslit Íslandsmótsins. Vinni Snæfellingar þá mæta þeir Grindavík í undanúrslitunum en vinni Stjarnan þá mæta þeir deildarmeisturum KR í næstu umferð. Keflavík, KR og Grindavík bíða því öll úrslita kvöldsins til að fá að vita hverjir verða mótherjar þeirra í undanúrslitaviðureignunum. Sagan er ekki með Stjörnumönnum í kvöld þrátt fyrir stórsigur í síðasta leik. Þetta er 27. oddaleikur sögunnar í átta liða úrslitum úrslitakeppni karla í körfubolta og hafa heimaliðin unnið 22 af 26 leikjum eða 85 prósent. Síðasta lið til þess að vinna oddaleik á útivelli í átta liðum úrslitakeppninnar voru ÍR-ingar í fyrra en þeir unnu þá 93-74 sigur á þá ríkjandi Íslandsmeisturum KR-inga og slógu þá út. Stjarnan vann leik tvö en þau lið sem hafa tapað fyrsta leiknum hafa aðeins náð að vinna 6 af þessum 26 oddaleikjum eða aðeins 24 prósent leikjanna. Síðasta liðið til að ná því að tryggja sig inn í undanúrslit eftir tap í fyrsta leik voru KR-ingar árið 2007. Þeir lentu 0-1 undir á móti ÍR en unnu tvo leiki í röð og fóru síðan alla leið og urðu Íslandsmeistarar. Stjarnan vann síðasta leik með 20 stiga mun og varð þar með aðeins þriðja liðið sem tryggir sér oddaleik í átta úrslitum með því að vinna leik tvö með 20 stigum eða meira. Grindavík jafnaði metin á móti Tindastól 2001 með 27 stiga sigri en Tindastóll vann oddaleikinn á heimavelli 79-75. Snæfell jafnaði metin á móti KR 2005 með 25 stiga sigri í Vesturbænum og komst síðan áfram með því að vinna oddaleikinn 116-105 á heimavelli í Hólminum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira