Aðeins tölfræði á milli Hamars og Iceland Express deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2009 19:00 Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars bregður á leik með Ragnari Nathanaelssyni. Mynd/Arnþór
Hamar getur í kvöld endanlega tryggt sér sigur í 1. deild karla og endurheimt um leið sæti sitt í Iceland Express deildinni. Efsta liðið í 1. deildinni fer beint upp en næstu fjögur lið fara síðan í úrslitkeppni um hitt lausa sætið. Haukar eru eina liðið sem getur náð Hamar að stigum en forskot Hamars er fjögur stig þegar fjögur stig eru eftir í pottinum. Það verður samt að teljast langsóttur möguleiki fyrir Haukar að ná að komast upp fyrir Hamar. Til að Haukar vinni 1. deild karla þarf liðið að vinna báða leiki sína á móti KFÍ (úti) og Val (heima) á sama tíma og Hamar tapar lokaleikjum sínum á móti Val (úti) og Þór Þorlákshöfn (heima). Þetta myndi samt ekki duga Haukum því það þarf fleira að gerast. Þegar lið eru jöfn að stigum þá ræður árangur í innbyrðisviðureignum röð liðanna. Hamar vann Hauka með 4 stigum í Hveragerði (78-74) en Haukar unnu seinni leikinn á móti Hamar líka með 4 stigum (69-65). Hamar og Haukar eru því jöfn innbyrðis og því mun heildarnettó liðanna ráða röðinni og þar standa Hamarsmenn miklu betur. Hamar er með 272 stig í plús en Haukar "aðeins" 109 stig. Haukar verða því að vinna upp 163 stiga forskot Hamars í þessum tveimur síðustu umferðum. Ef þessum stigum er deilt niður á leikina fjóra þá þurfa Haukar að vinna þá báða með 41 stigs mun á sama tíma og Hamar tapar þeim báðum með 41 stigs mun. það er því aðeins tölfræði sem stendur á milli Hamars og Iceland Express deildarinnar.
Dominos-deild karla Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Spánn - Ísland | Leiðin til Brasilíu hefst gegn heimsmeisturunum Fótbolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast“ „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Ítalir fóru illa með Bretana Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Skorti orku og ástríðu Orri með slitið krossband og þarf í aðgerð Sjá meira