Formúla 1

Formúlu 3 meistari fær Ferrari prófun

Jules Bianchi varð meistari í Formúlu 3 mótaröðinni evrópsku.
Jules Bianchi varð meistari í Formúlu 3 mótaröðinni evrópsku. mynd: Getty Images
Tvítugur Frakki, Jules Bianchi fær að prófa Ferrari í tvo daga eftir að hafa tryggt sér sigur í Evrópumótaröðinni í Formúlu 3. Ferrari hefur klikkað á því að gefa ungum ökumönnum tækfæri síðustu árin, ólíkt liðum eins og Red Bull, McLaren, Williams og Renault.

"Ég er orðlaus að fá bíl hjá besta keppnisliði heims. Það að fá að prófa Formúlu 1 bíl er eitt, en að prófa Ferrari er allt annað", sagði Bianchi.

Hann þykir mikið efni og Frakkar hafa átt fáa Formúlu 1 ökumenn síðustu ár, sá síðasti er Sebastian Bourdais, en hann náði ekki að sanna sig með Torro Rosso. Umboðsmaður Bianchi er Nicolas Todt, sonur Jean Todt fyrrum framkvæmdarstjóra Ferrari og forseti FIA.

"Ég verð að gæta þess að klessa ekki bílinn í fyrstu tilraun og læra skref fyrir skref, hvernig á að stýra svona verkfæri. Ég verð að standa mig vel og þá á ég kannski færi á fleiri prófunum", sagði Bianchi.

Hann keppir í sögufrægu móti í Macau í Kína um helgina í Formúlu 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×