Formúla 1

Brawn: Bruno Senna gæti blómstrað

Ayrton heitin Senna og frændi hans Bruno Senna.
Ayrton heitin Senna og frændi hans Bruno Senna.

Frændi hins heimsþekkta Ayrtons Senna, Bruno Senna keppir í Formúlu 1 á næsta ári og Ross Brawn, eigandi heimsmeistaraliðsins telur að hann geti orðið góður í Formúlu 1.

Í fyrra spáði Brawn í að ráða Senna til Honda liðsins, sem síðar varð Brawn, en kaus að nýta krafta Rubens Barrichello vegna reynslunnar.

"Senna var besti ungi ökumaðurinn sem við prófuðum og gerði góða hluti á æfingum", sagði Brawn. Senna hefur verið ráðinn ökumaður hjá Campos liðinu, sem er nýtt Formúlu 1 lið frá Spáni. Það er í eigu Adrian Campos sem er fyrrum Formúlu 1 ökumaður.

"Mig hlakkar til að sjá hvernig Senna stendur sig, en það verður nokkur pressa að bera Senna eftirnafnið í Formúlu 1. Hann er í toppformi og getur æft sig í ökuhermi og kart kappakstri. Michael Schumacher æfði sig mikið á kart bílum og hélt sér þannig ferskum", sagði Brawn.

Senna keppti í sportbílakappakstri á þessu ári og afþakkaði sæti hjá Mercedes í DTM mótaröðinni í upphafi tímabilsins. Draumur hans um sæti í Formúlu 1 hefur nú ræst, eftir að Brawn hafnaði honum í fyrra. Allt bendir til þess að Brawn ráði Nico Rosberg og Jenson Button til liðsins á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×