Körfubolti

Shouse framlengir við Stjörnuna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Justin Shouse.
Justin Shouse. Mynd/Daníel

Stjarnan tilkynnti í dag að félagið hefði náð samningum við Bandaríkjamanninn Justin Shouse um að hann leiki áfram með félaginu á næstu leiktíð.

Shouse mun þjálfa yngri flokka hjá félaginu ásamt því að spila með meistaraflokki karla.

Stjarnan hafði áður gengið frá tveggja ára samningi við Makedónann Jovan Zdravevski en þeir tveir voru í algjöru lykilhlutverki hjá bikarmeisturunum á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×