Íslenski boltinn

Önnur markaveisla hjá sautján ára stelpunum - 24 mörk í 2 leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska 17 ára landsliðið.
Íslenska 17 ára landsliðið. Mynd/Fésbókarsíðar stelpnanna

Íslenska 17 ára landsliðið er að gera frábæra hluti í undankeppni EM í Búlgaríu en liðið fylgdi eftir 14-0 sigri á Litháen á mánudaginn með því að vinna 10-0 sigur á heimastúlkum í Búlgaríu í dag.

Selfyssingurinn Guðmunda Brynja Óladottir kom inn af bekknum og skoraði þrennu í seinni hálfleik en þær Aldís Kara Lúðvíksdóttir og Hildur Antonsdóttir voru báðar með tvennu í leiknum.

Hin þrjú mörk íslenska liðsins skoruðu síðan þær Eva Núra Abrahamsdóttir, Telma Þrastardóttir og Lára Einarsdóttir.

Lokaleikur íslenska liðsins er á móti Ítalíu á laugardaginn en ítalska liðið vann 4-0 sigur á Búlgaríu og 7-0 sigur á Litháen.

Þjálfari stelpnanna er Þorlákur Árnason.

Efsta sæti riðilsins tryggir sæti í milliriðlum og einnig komast þær fimm þjóðir áfram sem bestan árangur hafa í öðru sæti riðlanna tíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×