Formúla 1

Rosberg stenst Schumacher snúning

Nico Rosberg stóð ekki í skugga Schumachers um síðustu helgi, því hann náði betri árangri, varð fimmti en Schumacher sjötti.
Nico Rosberg stóð ekki í skugga Schumachers um síðustu helgi, því hann náði betri árangri, varð fimmti en Schumacher sjötti. mynd: Getty Images

Nico Rosberg hefur borið sig vel og staðið sig vel eftir að Michael Schumacher gekk til liðs við Mercedes liðið. Mikil athygli hefur fylgt endurkomu hans og viss pressa myndast á Rosberg að standa sig, en hann hefur staðið sig með prýði.

Einhverjir hafa spá í það hvort það henti akstursstíl Schumacher illa að

búið að mjókka framdekkin, en Nick Fry hjá Mercedes er ekkert á því.

"Ég sé engan mun á vinnu Rosberg og Schumacher. Þeir vita báðir hvað þeir

vilja varðandi að bæta getu bílsins og eru vissir í sinni sök. Ég hef ekki

heyrt að Schumacher hafi nein sérstök vandamál hvað bílinn varðar. Þeir

eru báðir með vinnulista með sínum tæknimönnum. Ég hef verið mjög hrifin

af hugarfari Rosberg frá því að tilkynnt var um komu Schumachers", sagði

Nick Fry hjá Mercedes.

"Ég held að það hafi aldrei verið honum ofviða á neitt hátt. Hann hefur

bara unnið sitt verk og sannað að hann er fljótur ökumaður. Ross er búinn

að sjá að það eru þættir sem Rosberg getur bætt, ekki bara hvað varðar

bílinn heldur hann sjálfan og hann mun halda áfram að bæta sig. Ég tel við

séum með mannskapinn og búnaðinn til að gera góða hluti á þessu langa

keppnistímabili", sagði Brawn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×