Körfubolti

Ægir Þór: Varnarleikurinn lagði grunninn að sigrinum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson.
Ægir Þór Steinarsson.

„Þetta var bara frábær leikur og algjörlega sigur liðsheildarinnar hjá okkur. Það voru allir að leggja sig fram og margir leikmenn að stíga upp á réttum tímapunktum í leiknum. Við vorum kannski ekki að spila neitt sérstaklega vel sóknarlega en varnarleikurinn lagði grunninn að sigrinum hjá okkur," sagði Ægir Þór Steinarsson hjá Fjölni en hann stýrði leik Fjölnismanna af mikilli festu í kvöld í góðum 69-64 sigri gegn Snæfelli þrátt fyrir að lenda snemma í talsverðum villuvandræðum.

Fjölnismenn styrktu stöðu sína verulega með sigrinum í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar.

„Þessir sigrar okkar gegn toppbaráttuliðinum gefa okkur náttúrulega mikið sjálfstraust. Við eigum KR næst og við ætlum að taka þá líka. Menn eru að leggja hart að sér á æfingum og það er bara að skila sér. Við ætlum okkur að komast í úrslitakeppnina og eins og deildin er að spilast þá eiga bara flest liðin möguleika á titlinum," sagði Ægir Þór að lokum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×