Formúla 1

Schumacher: Mótið í Singapúr ævintýri

Lewis Hamilton vann flóðlýsta mótið í Singapúr í fyrra á McLaren og sést hér á æfingunni fyrir keppnina í rökkrinu.
Lewis Hamilton vann flóðlýsta mótið í Singapúr í fyrra á McLaren og sést hér á æfingunni fyrir keppnina í rökkrinu. Mynd: Getty Images
Michael Schumacher hjá Mercedes telur að Formúlu 1 mótið í Singapúr um næstu helgi verði spennandi viðfangsefni. Schumacher keyrir brautina í fyrsta skipti og liðsfélagi hans Nico Rosberg segir mótið einn af hápunktum keppnistímabilsins.

"Mér hefur alltaf þótt gaman að því að læra inn á nýjar brautir og Síngapúr brautin verður spennandi vettvangur", sagði Schumacher í tilkynningu frá Mercedes á f1.com.

"Það eru þrjá ástæður til að hlakka til mótsins. Þetta er ný braut hjá mér, þetta er götu kappakstur og fyrsta mótið mitt í náttmyrkri. Það hefur aldrei verið flókið fyrir mig að keyra nýjar brautir og ég er fljótur að finna taktinn. Við viljum standa okkur vel sem lið og gefum allt í að ná góðum árangri", sagði Schumacher.

Rosberg hefur keppt í tvígang á brautinni sem hefur verið notuði tvö síðustu ár.

"Stemmningin er frábær og næturkeppni virkar vel, ef maður gætir þess að halda sér á dagtíma í Evrópu. Ég varð annar í mótinu í Singapúr árið 2008. Brautin er skemmtileg og reynir mikið á. Þetta er alvöru götubraut, þröng og afgirt og aldrei tími til að slaka á. Okkur hefur gengið þokkalega í tveimur síðustu mótum og vonandi verðum við áfram í stigasæti í Singapúr", sagði Rosberg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×