Körfubolti

Nick Bradford: Völdum slæman dag til þess að spila hrikalega illa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nick Bradford óskar hér Sigurði Þorvaldssyni til hamingju með sigurinn.
Nick Bradford óskar hér Sigurði Þorvaldssyni til hamingju með sigurinn. Mynd/Daníel
Nick Bradford varð annað árið í röð að sætta sig við að tapa í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Í fyrra tapaði hann með Grindavík aðeins einu stigi á móti KR en í kvöld steinlágu hann og félagar hans í Keflavík fyrir Snæfelli.

„Við völdum slæman dag til þess að spila svona hrikalega illa. Þeir tóku okkur í gegn strax frá fyrstu sókn," sagði Keflvíkingurinn Nick Bradford eftir 36 stiga tap á heimvelli á móti Snæfelli í hreinum úrslitaleik um titilinn.

„Við vorum ekki að spila neina vörn og ég held að þeir hafi skorað 30 stig á fyrstu fimm mínútunum. Þeir voru að hitta úr galopnum skotum og keyrandi upp á körfu án þess að einhver í okkar liði gerði eitt eða neitt til að stoppa það," sagði Nick.

„Það var bara einn maður í okkar liði sem mætti til spila þennan leik og það var Ule. Allir aðrir mættu ekki til leiks í kvöld," sagði Nick en Uruele Igbavboa skoraði 23 stig í kvöld þrettán stigum meira en næsti maður í liðinu

„Það er erfitt að elta allan leikinn og þá sérstaklega í svona stórum leik og á móti svona líkamlega sterku liði eins og Snæfell. Þeir áttu þennan sigur skilinn og ég óska þeim til hamingju. Þetta er fyrsti stóri titilinn í sögu klúbbsins og þeir eiga að njóta þess," sagði Nick að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×